Námskeið

Hilton Reykjavik Spa býður upp á fjölbreytt námskeið fyrir alla aldurshópa


60+ Námskeið

Þann 28. Apríl fer af stað 60+ námskeið hér á Hilton Reykjavík Spa.


Námskeiðið er byggt upp á skemmtilegum tímum sem eru sniðnir fyrir fólk 60 ára og eldri. Áhersla er lögð á styrk, þol, jafnvægi og samhæfingu til þess að auka lífsgæði. Þjálfarar veita persónulega aðstoð og geta aðlagað æfingar að þörfum hvers og eins.


Hilton Reykjavík Spa býður upp á huggulegt andrúmsloft til æfinga ásamt heilsulind með heitum pottum, saunu o.fl. Innifalið í námskeiði er aðgangur að Hilton Reykjavík Spa, 10% afsláttur af nuddmeðferðum, handklæði við komu og kaffi á kaffistofu.

Í boði er að koma í mælingu við upphaf og lok námskeiðs.


Námskeiðið stendur yfir í 4 vikur og er kennt á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum klukkan 12:00*

Aðra daga vikunnar er velkomið að mæta í salinn og fá prógramm hjá þálfara


Verð: 26.900 kr.


Nánari upplýsingar í síma 444 5090 eða á spa@hiltonreykjavikspa.is

*Lágmark 5 þurfa að skrá sig til þess að tímasetning haldi sér, annars er reynt að færa á aðra tíma.



Zumba Gold námskeið

Næsta námskeið hefst 24. mars


Zumba Gold er útgáfa af vinsælu Zumba dansæfingunni með minni ákefð, fullkomin æfing fyrir 50+, byrjendur eða þá sem eru að jafna sig eftir meiðsli.


Zumba Gold sameinar auðveldar danshreyfingar við latneska tónlist og tryggir æfingu fyrir allan líkamann. Æfingin er mjúk við liði en býður samt upp á alla þá skemmtun og líkamsræktarávinning eins og hefðbundið Zumba.


Innifalið í námskeiði er aðgangur að Hilton Reykjavík Spa, 10% afsláttur af nuddmeðferðum, handklæði við komu og kaffi á kaffistofu.


Námskeiðið stendur yfir í 4 vikur og er kennt á mánudögum kl 14 og fimmtudögum kl 13


Verð: 23.900 krónur

5.900 krónur fyrir meðlimi Hilton Reykjavík Spa á meðan pláss leyfir. 


Nánari upplýsingar í síma 444 5090 eða á spa@hiltonreykjavikspa.is


*Lágmark 5 þurfa að skrá sig til þess að tímasetning haldi sér, annars er reynt að færa á aðra tíma.


Hópþjálfun

Komdu með hópinn þinn í þjálfun til okkar.


Tvær æfingar í viku, mælingar á tveggja vikna fresti og aðstoð við markmiðasetningu.


Markvissar æfingar, mikið aðhald, mikil hvatning.

Verð: 29.900 kr.

(5.900 kr. fyrir meðlimi)


Innifalið í námskeiði er aðgangur að Hilton Reykjavík Spa, 10% afsláttur af nuddmeðferðum, handklæði við komu og kaffi á kaffistofu.


NÁMSKEIÐ Í BOÐI:

Tímasetningar ákveðnar eftir hentugleika og í samráði við þjálfara


Skráning og nánari upplýsingar á spa@hiltonreykjavikspa.is og í síma 444 5090