Suðurlandsbraut 2
Reykjavík, Ísland 108
S: +354 444-5090
Innifalið í meðlimakortum okkar er aðgangur að líkamsræktarþjálfara í tækjasal sem útbýr sérsniðna æfingaáætlun fyrir hvern og einn, kennir á tækin og aðstoðar eftir þörfum. Einnig eru fjölbreyttir hóptímar í boði þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, aðgangur að heilsulindinni og heitu pottunum fyrir korthafa og handklæði við hverja komu. Í heilsulindinni eru tveir heitir pottar, ilmgufa ásamt slökunarlaug. Úti á veröndinni er einnig heitur pottur, kaldur pottur og sauna ásamt sólbaðsaðstöðu.
Hér má finna upplýsingar um þjálfara í sal, kennara og einkaþjálfara. Þjálfararnir okkar hjálpa þér að ná tilsettum markmiðum með því að hanna æfingaáætlun með þarfir þínar í huga og tryggja að æfingarnar séu rétt gerðar. Hvort sem þú vilt grenna þig, styrkja, auka liðleika, snerpu eða einfaldlega láta þér líða betur hjálpa þjálfararnir okkar þér að ná árangri og viðhalda áhuga.
Viðvera þjálfara í sal:
Mánudaga-föstudaga 06:00-18:00
Mánudaga til föstudaga 06:00 - 20:00
Laugardaga 09:00 - 18:00
Sunnudaga 09:00 - 17:00